KVEIKJUM NEISTANN
heildstæð nálgun á skólastarf

FYRIR SKÓLA
Kveikjum neistann miðar að því að bæta líðan, efla námsárangur og styrkja áhugahvöt nemenda með heildstæðum hætti í skólastarfinu. Vegferðin er byggð á áreiðanlegum mælingum og aðferðum sem tryggja markvissa þjálfun, eftirfylgni og sýnilegan árangur innan skólasamfélagsins.

FYRIR KENNARA
Kveikjum neistann styður kennara við að greina stöðu hvers nemanda með einföldum og skýrum mælitækjum til að geta veitt nemandanum verkefni sem hæfir færni hans. Með verkefninu eflum við gróskuhugarfar og þrautseigju nemenda, þar sem markmiðið er að sérhver nemandi upplifi trú á eigin getu.

FYRIR FORELDRA
Foreldrar fá dýpri innsýn í stöðu, framfarir og markmið barna sinna. Verkefnið virkjar samstarf heimilis og skóla við að efla lestrarfærni og vellíðan. Við leggjum áherslu á að rækta með börnunum ástríðu fyrir námi, aukinn baráttuanda og seiglu sem nýtist þeim út í lífið.
UM VERKEFNIÐ
Kveikjum neistann er heildstæð nálgun í skólastarfi sem hefur það markmið að efla sjálfstraust, seiglu og gróskuhugarfar barna í íslenskum skólum. Verkefnið byggir á rannsóknum á námi, hvatningu og þroska barna og leggur áherslu á að hver nemandi fái tækifæri til að þróa sína styrkleika.
Með vísindalega viðurkenndum aðferðum og samstarfi við skóla, kennara og foreldra er leitast við að skapa jákvætt námsumhverfi þar sem börn fá stuðning til að takast á við áskoranir, læra af mistökum og byggja upp trú á eigin getu.
Markmiðið er að bæta líðan, bæta árangur og efla áhugakvöt.

Hefur þú áhuga?
Við tökum glöð á móti áhugasömum skólum um verkefnið.
