Fyrstu niðurstöður þróunarverkefnisins Kveikjum neistann sýna að 77 prósent barna í fyrsta bekk grunnskólans í Vestmannaeyjum geti lesið texta. Rannsóknir hafa áður sýnt að 39 prósent barna í Reykjavík séu ekki læs eftir annan bekk í grunnskóla.
Samkvæmt prófum hefur frá síðustu aldamótum um þriðjungur 15 ára nemenda verið undir lágmarksviðmiði í lestri.
Hermundur Sigmundsson prófessor er einn þeirra sem fara fyrir verkefninu en um er að ræða langtímaverkefni þar sem nemendum er fylgt eftir á grunnskólagöngu sinni. Verkefnið snýr meðal annars að þróun kennsluhátta og hugarfari nemenda.
Hermundur segir fyrstu niðurstöðurnar sýna að allt sé hægt með réttum aðferðum. „Þessar tölur veita mér von,“ segir Hermundur sem löngum hefur sagt að ekki sé farið rétt að í kennslu og viðmiðum í lestri hér á landi. Lykill að árangri sé stöðumat, markviss þjálfun og eftirfylgni.
„Þessar tölur er frá því í janúar 2022 sem þýðir að börnin eru rétt að hefja sína skólagöngu sem gerir þetta enn ánægjulegra.“
Grein birtist í Fréttablaðinu 10.03.22: https://www.frettabladid.is/frettir/fleiri-nemendur-i-vestmannaeyjum-geta-lesid-texta/

