Kveikjum neistann er heildstæð nálgun í skólastarfi sem miðar að því að bæta líðan, efla námsárangur og styrkja áhugahvöt nemenda.Verkefnið byggir á sterkum rannsóknum á námi og þroska barna og veitir skólum hagnýt verkfæri til að skapa jákvætt námsumhverfi þar sem hver nemandi fær tækifæri til að blómstra á eigin forsendum.
Hvað felst í innleiðingu á Kveikjum neistann?
Skólar sem taka þátt í verkefninu fá umfangsmikinn stuðning og aðgang að sérhæfðum mælitækjum:
- Fjárstuðningur: Skólar fá sérstakan fjárstuðning til að auðvelda markvissa innleiðingu verkefnisins í skólastarfið.
- Sérhæfð mælitæki: Aðgangur að mælitækjum sem þróuð hafa verið til að meta stöðu barna í grunngreinum og fylgjast með framförum þeirra.
- Handleiðsla og eftirfylgni: Fulltrúar frá KN setrinu starfa sem leiðbeinendur og veita skólum dýrmætan stuðning við innleiðingu og framkvæmd.
- Handbók og verkfæri: Skólar fá ítarlega handbók og aðgang að fjölbreyttum leiðum fyrir kennara til að efla seiglu og sjálfstraust nemenda.
Fræðilegur grunnur og vísindaleg nálgun
Verkefnið byggir á niðurstöðum fremstu vísinda á sviði náms- og færniþróunar. Við vinnuna er horft til sex lykilþátta til að ná árangri:
- Endurtekningin skapar meistarann (Edelman): Við leggjum áherslu á að taugakerfið mótast með æfingu.
- Markviss þjálfun og jákvæð styrking (Ericsson): Lykillinn að færni er skipulögð þjálfun með reglulegri eftirfylgni þar sem jákvæð endurgjöf er í fyrirrúmi.
- Flæði og réttar áskoranir (Csikszentmihalyi): Til að ná framúrskarandi árangri verða nemendur að mæta áskorunum sem eru í samræmi við færni þeirra svo þeir upplifi flæði í náminu. Markvissir þjálfunartímar eru hluti af hugmyndafræði Kveikjum neistans.
- Gróskuhugarfar, þrautseigja og ástríða (Dweck & Duckworth): Við ræktum seiglu og þrautseigju. Viðfangsefni sem kveikja áhuga nemandans eru nýtt sem drifkraftur í námi. Ástríðutímar eru hluti af
- Heildstæð sýn á styrkleika: Námsumhverfið er hannað til að draga fram það besta í hverju barni með áherslu á vellíðan og árangur. Þessu er náð fram m.a. með breyttu skipulagi skóladagsins.
- Hreyfing, aukin einbeiting og betri líðan: Aukin hreyfing nemenda er mikilvægur þáttur í skólastarfinu til að efla líðan og einbeitingu nemenda.
Viltu taka þátt?
Við bjóðum sveitarfélögum og skólastjórnendum upp á kynningarfundi þar sem farið er dýpra í hvernig Kveikjum neistann getur eflt skólastarfið ykkar.